Maður að nafni David Rumsey var handtekinn á tónleikum Miley Cyrus í Las Vegas um helgina. Rumsey var staddur í mannfjöldanum en hann hefur áður verið tekinn fyrir áreiti í garð tónlistarkonunnar.
Hann hefur haft í hótunum við Cyrus síðastliðin ár og hefur sagt starfsmönnum hennar að það sé markmið hans í lífinu að gera hana ólétta.
Rumsey hafði skrifað undarlegar færslur á Twitter dagana fyrir tónleikana. Hann sagðist vilja djamma með Cyrus í Vegas, ásamt Michael Jackson, Prince og Tupac en hann ætlaði að vekja þá aftur til lífs.
Það voru færslurnar á Twitter sem vöktu athygli öryggisteymis Cyrus og báðu þau öryggisgæslu á tónleikunum að hafa augun opin fyrir þessum manni. Hann var svo handtekinn á tónleikunum og færður í fangageymslu, þar sem hann dúsar ennþá.