Breska tónlistarkonan er búin að eyða dágóðum tíma með tónlistarmanninum Skepta síðan leiðir hennar og eiginmanns hennar skyldu í vor.
Breski slúðurmiðillinn Mirror greinir frá því að vinasamband tónlistarfólksins hafi styrkts til muna eftir að Adele skildi við Simon Konecki og að ef til vill sé vinasambandið orðið að einhverju meira.
Skepta er líkt og Adele úr úthverfinu Tottenham í Bretlandi og hafa þau stutt hvort annað í gegnum árin.