Söngkonan Svala Björgvinsdóttir er í fríi með kærasta sínum Gauta Sigurðarsyni á Spáni þessa dagana. Það er greinilega mjög gott veður hjá þeim en Svala birti tvær myndir af sér á Instagram í dag, fimmtudag, þar sem hún sést baða sig í sólinni.
Svala er þekkt fyrir að vera með fagurlega skreyttan líkama og fá húðflúr hennar vel að njóta sín þegar hún klæðist sundfötum í fríinu. Má ekki bara sjá „ermina“ á hægri handlegg hennar og húðflúrið á bringu hennar heldur einnig afar stórt og mikið húðflúr á hægra læri. Einnig er Svala með húðflúr á ristunum og aftan á báðum lærum.