Sigurður fulltrúi Íslands í Feneyjum

Sigurður Guðjónsson myndlistarmaður.
Sigurður Guðjónsson myndlistarmaður. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Myndlistarmaðurinn Sigurður Guðjónsson er fulltrúi Íslands á Feneyjatvíræringnum 2021. Val á fulltrúa Íslendinga á Feneyjatvíæringinn 2021 var í höndum fagráðs Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.

Fagráðið skipa: Helga Björg Kjerúlf, framkvæmdastjóri Kynningarmiðstöðvarinnar; Ásdís Spanó myndlistarmaður og Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar — menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Gestir nefndarinnar voru Heiðar Kári Rannversson sýningarstjóri og Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður.

Í rökstuðningi fagráðs segir að með vali Sigurðar tefli Ísland fram listamanni sem hafi unnið að áhrifamiklum innsetningum á óvenjulegum sýningarsvæðum og byggt upp afar sterka röð sýninga sem hafi vakið verðskuldaða athygli í heimi samtímalistarinnar.

Sigurður á yfir tuttugu einkasýningar að baki víðs vegar um heiminn, en hann hlaut auk þess Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir verk sitt Innljós í kapellu og líkhúsi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Hans nýjasta verk ber titilinn Enigma og verður verkið meðal annars til sýnis í Kennedy Center í Washington, Adler Planeterium í Chicago og Carnegie Hall í New York á umfangsmikilli sýningarvegferð sinni um heiminn sem nú stendur yfir.

Sigurður notar tímamiðil (vídeó) í verkum sínum sem fangar áhorfandann gegnum ryþma og endurtekningu og tengir mynd og hljóð á þann hátt að þau virðast víkka skynsviðið og vekja nýjar kenndir. Á síðustu árum hefur hann líka unnið í samstarfi við tónskáld og þannig búið til verk sem sameina vídeó, rafhljóð og lifandi flutning. Hann er sífellt að víkka út sköpunarsviðið en verk hans bera sterk persónuleg einkenni og ná að skapa undarlega nánd sem aftur styrkir enn frekar skynhrifin.

Sigurður Guðjónsson er fæddur árið 1975 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Billedskolen í Kaupmannahöfn 1998 — 1999, Listaháskóla Íslands 2000 — 2003, BA og Akademie Der Bildenden Kunste í Vínarborg 2004.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes