Útvarpskonan Kristín Sif Björgvinsdóttir ræðir um hvernig hún hefur tekist á við lífið, eftir að hún kom að eiginmann sínum látnum, á fyrirlestri sínum í Hörpu 18. janúar næstkomandi.
Fyrirlestur Kristínar Sifjar er hluti af samkomunni Bara það besta 2020 — Einlægni, gleði, hamingja sem haldin verður í Hörpu. Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jónsson eru kynnar samkomunnar en þeir munu báðir einnig halda fyrirlestur.
Upplýsingar um viðburðinn má finna á Facebook en miðasala fer fram á harpa.is.
Viðtöl við fyrirlesara samkomunnar munu birtast hér á mbl.is á næstu dögum.