„Performans fyrir stórt svið“

Verkið Eyður verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
Verkið Eyður verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er performans fyrir stórt svið þar sem við erum meðal annars að leika okkur með það að vera á stóru sviði í gömlu leikhúsi,“ segir Sigurður Arent Jónsson, sviðslistamaður og einn fimm höfunda myndræna sviðsverksins Eyður sem sviðslistahópurinn Marmarabörn (Marble Crowd) frumsýnir á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld kl. 19.30. Meðhöfundar Sigurðar eru danslistakonurnar Katrín Gunnarsdóttir, Saga Sigurðardóttir og Védís Kjartansdóttir og myndlistarmaðurinn Kristinn Guðmundsson, en Igor Dobricic er dramatúrg. Tónlistin, bæði útsetningar og flutningur, er í höndum Gunnars Karels Mássonar. Sviðsmynd og búninga hannar Guðný Hrund Sigurðardóttir, vídeó gerir Guðmundur Úlfarsson og lýsingu hannar Halldór Örn Óskarsson. 

Samsköpun lykilatriði

Eyður er önnur sýning Marmarabarna, en fyrsta sýning þeirra, Moving Mountains, var tilnefnd til gagnrýnendaverðlauna evrópska tímaritsins Tanz 2017 og Grímuverðlaunanna 2019 í flokknum danshöfundur ársins. Spurð um tilurð hópsins rifjar Sigurður upp að Saga Sigurðardóttir hafi hóað þátttakendum saman fyrir nokkrum árum til að dansa í verkum hennar sem nefnast Scape of Grace (2013) og Predator (2014). „Þegar þeim verkefnum lauk vildum við endilega halda áfram að vinna saman þannig að við ákváðum að breyta vinnufyrirkomulaginu og vinna sýningar í meiri samsköpun,“ segir Sigurður og áréttar að samsköpun hafi reyndar verið áberandi undir listrænni forystu Sögu.

„Hópurinn small svo vel saman og því vildum við gera fleiri sýningar. Dýnamíkin í hópnum er góð að því leyti að við erum gagnrýnin á hvert annað en gefum hvert öðru líka rými til að anda. Við búum yfir fjölbreyttum hæfileikum, komum úr leiklist, danslist og myndlist auk þess sem hæfileikaríkt tónlistarfólk kemur að sköpuninni,“ segir Sigurður sem sjálfur útskrifaðist frá Konunglega skoska listaháskólanum í Glasgow árið 2010 í samtímasviðslistum. „Reynslan hefur kennt okkur að góðir hlutir gerast oft hægt. Við erum því afar afslöppuð gagnvart sköpunarferlinu og leyfum því að taka þann tíma sem þarf án þess að vera að flýta okkur. Við höfum ólíka listræna sýn á hlutina en reynum að leyfa öllum röddum að heyrast, hvort heldur er á fundum eða í spunanum á sviðinu,“ segir Sigurður og tekur fram að mikið traust og virk hlustun sé einkennandi í hópnum.

Plast í ýmsum myndum er áberandi efniviður í verkinu Eyður.
Plast í ýmsum myndum er áberandi efniviður í verkinu Eyður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Innblásin af plastumræðunni

Aðspurður segir Sigurður að Eyður fjalli um fimm strandaglópa sem ranki við sér á eyðieyju einhvers staðar milli raunheima og skáldskapar. „Í framandlegu vistkerfi reyna strandaglóparnir að endurskapa heiminn eftir minni. Á meðan leikmennina rekur á milli raunverulegra og ímyndaðra kringumstæðna birtast þeim sýnir á flökti milli fortíðar og framtíðar,“ segir Sigurður og tekur fram að leikmyndin öll sé samsett úr plasti og áréttar að efniviðurinn sem hópurinn vinni með hverju sinni leiði þau áfram í rannsókn sinni.

„Í uppfærslum okkar blandast danslistin og myndlistin saman. Við fyllum upp í rýmið með ýmsum hætti með líkömum okkar. Auk þess sem við vinnum alltaf rannsókn með ákveðinn efnivið sem leiðir okkur að ákveðnum söguþræði. Í Moving Mountains unnum við með reipi en núna erum við að vinna með plast,“ segir Sigurður og tekur fram að sviðslistahópurinn sé innblásinn af umræðu samtímans um plast og plastnotkun.

„Við erum auðvitað ekkert að finna upp hjólið. Ég held samt að við séum að bjóða upp á eitthvað sem er öðruvísi í núverandi umhverfi. Þannig hafa ýmsir hönnuðir haft samband við okkur og fundist einstaklega áhugavert hvernig við vinnum út frá efniviðnum og látum hlutina segja sína sögu. Við byrjum á því að finna hráefni eða efnivið sem okkur finnst gaman að vinna með og í gegnum hann komumst við að einhverri sammannlegri sögu,“ segir Sigurður, en plastið sem þau fengu til afnota eru meðal annars netadræsur, plaststrangar og gamlar plastflöskur.

Fjölbreyttur hópur listamanna stendur að gerð verksins Eyður.
Fjölbreyttur hópur listamanna stendur að gerð verksins Eyður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Merking ekki fengin fyrir fram

„Í verkinu vinnum við með eyjuna sem sögulegt minni og menningarlega vísun,“ segir Sigurður og rifjar upp að meðal þess sem veitt hafi þeim innblástur sé saga af austurrískri konu sem fyrir hundrað árum flutti til Galapagoseyja. „Á þeim tíma voru eyjar náttúruleg nýlenda sem kallaði á að fólk flyttist þangað til að eigna sér þær. Hún lýsti því yfir að hún væri keisaraynja af Galapagoseyjum þrátt fyrir að þau væru aðeins tvo til þrjú sem byggju á eyjunum. Það er ýmislegt sem við höfum fundið í rannsókn okkar sem við notum í verkinu. Síðan erum við líka óhrædd við að búa til eitthvað sem er fallegt og á heima á sviði og þurfum ekki endilega að vera með fyrirvara um ákveðna merkingu. Við viljum frekar fara með áhorfendur í leiðangur með okkur sem gefur færi á að við uppgötvum eitthvað saman,“ segir Sigurður og tekur fram að þótt sýningar hópsins séu að því leyti opnar til túlkunar sé engu að síður alltaf undirliggjandi skýr saga. „Við beitum sviðshreyfingum og sviðsmyndinni og einstaka sinnum orðum til að búa til myndir. Markmið okkar er að skapa háleita upplifun með því að leika okkur með tæknina. Við hugsum ekki verkið fyrir einhvern afmarkaðan hóp heldur er markmið okkar að sem flestir geti notið sýningarinnar.“

Skrópar til að skapa

Eins og áður sagði lauk Sigurður námi frá Glasgow, en síðustu árin hefur hann verið búsettur í Svíþjóð þar sem eiginkona hans, Hallgerður Hallgrímsdóttir myndlistarkona, var í meistaranámi, en þau fluttu nýverið heim til Íslands að námi loknu. „Meðan ég var enn í námi var ég fenginn til að koma fram í ýmsum dansverkum og í framhaldinu kynntist ég síðan svissneska leikstjóranum og tónlistarmanninum Thom Luz, sem er eitt af stóru nöfnunum í Sviss. Hann er mjög öflugur og skemmtilegur listamaður sem kemur miklu í verk,“ segir Sigurður, sem tekið hefur þátt í tveimur sýningum Luz, þeirra á meðal Girl from the Fog Machine Factory.

„Okkur var boðið með Girl from the Fog Machine Factory á Feneyjatvíæringinn 2018 og að sýna á Theatertreffen í fyrra, en sýningin var valin ein af tíu bestu sýningum þýskumælandi svæðisins það árið,“ segir Sigurður sem sýna mun sýninguna í Kína næsta haust. „Ef Girl from the Fog Machine Factory verður jafn vinsæl og fyrri sýningar Luz get ég búist við því að þurfa að skreppa nokkrum sinnum á ári næstu árin til að sýna hana víðs vegar um heiminn,“ segir Sigurður og tekur fram að það sé vissulega örlítið snúnara að fara í sýningarferðir frá Íslandi en Svíþjóð. „Ég var til dæmis að fara að sýna í Antwerpen í desember og það vildi þannig til að búið var að gefa út appelsínugula viðvörun fyrir allt landið daginn sem ég átti að fljúga. Ég þurfti því að flýta ferðinni um einn dag til að ná sýningunni og það rétt slapp,“ segir Sigurður, sem hóf meistaranám í sviðslistum við Listaháskóla Íslands í haust. „Námið leggst mjög vel í mig, enda frábærir fyrirlesarar og skemmtilegur bekkur. Ég hafði lengi ætlað mér að fara aftur í skóla til að ögra sjálfum mér, fá innblástur og kynnast nýjum listamönnum,“ segir Sigurður og tekur fram að hann hafi síðustu vikur þurft að skrópa í skólanum til að geta skapað sýninguna sem frumsýnd verður á miðvikudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes