Grínistinn Kyle Dunnigan greindi frá því í útvarpsþætti Howard Stern að hann byggi tímabundið heima hjá Amy Schumer og eiginmanni hennar, kokkinum Chris Fischer. Það undarlega við þetta allt saman er að Dunnigan og Schumer voru eitt sinn kærustupar.
Stern spurði hvort það væri ekki vandræðalegt að búa með eiginmanni fyrrverandi kærustu sinnar en Dunnigan svaraði því svo að þeir væru góðir félagar. „Við teflum og allur matur er mjög góður og ókeypis,“ svaraði Dunnigan.
Dunnigan er að vinna að nýjum þætti með Schumer og býr þess vegna hjá grínleikkonunni og fjölskyldu hennar. Segist hann hafa búið heima hjá þeim í einn og hálfan mánuð. Líður honum svo vel að hann veit ekki hvort hann verði tilbúinn til þess að fara eftir þrjár vikur. Er hann með sitt eigið herbergi og eigið marmarabaðherbergi.