Hinn 79 ára gamli Al Pacino er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni The Irishman og er því nóg að gera hjá honum þessa dagana. Pacino hefur verið duglegur að koma sér í fréttir í vikunni vegna óheppilegra atvika. Ekki skal sagt hvort álaginu eða aldrinum sé um að kenna eða hvort Pacino hafi einfaldlega verið mjög óheppin í vikunni.
Á þriðjudaginn kom Pacino fram í þættinum The One Show á BBC. Vakti það athygli þegar Pacino virtist ekki vita í hvaða þætti hann var.
„Dreymdi þig The One Show í nótt?“ Spurði spyrillinn Pacino eftir að hann sagði að fólk dreymdi það sem það gerði. Pacino virtist gáttaður og þufti spyrillinn að segja honum í hvaða þætti hann væri staddur.
Hér má sjá klippuna.
Was Al Pacino dreaming about #TheOneShow last night? 💭 pic.twitter.com/iWLBwxhMSS
— BBC The One Show (@BBCTheOneShow) February 4, 2020
Al Pacino komst einnig í fréttir á sunnudagskvöldið en þá fyrir að detta kylliflatur á rauða dreglinum á BAFTA-verðlaunahátíðinni. Fékk hann þó góða hjálp meðal annars frá kærustu sinni, Meital Dohan.
Not Al Pacino pulling a Jason Derulo at the #BAFTA 😭 pic.twitter.com/2T2NOenzqR
— ed (@ryansgosling) February 2, 2020