Piparsveinninn Colton Underwood er einn þeirra sem greindir eru með kórónuveiruna en hann fjallaði um sjúkdóminn á instagramsíðu sinni í gær.
Underwood, sem var piparsveinninn í samnefndum vinsælum þáttum í fyrra, hvetur fólk til að fara í sóttkví; sér í lagi ef það finnur fyrir einhverjum flensueinkennum.
Underwood er 28 ára gamall og kveðst vera í nokkuð góðu formi. Vegna veikindanna á hann hins vegar erfitt með að labba upp stiga án þess að verða móður og ítrekar að fólk eigi að fara varlega.
View this post on InstagramA post shared by Colton Underwood (@coltonunderwood) on Mar 20, 2020 at 1:29pm PDT