Óvenjubústinn afturendi tónlistarkonunnar Madonnu er aftur til umræðu á samfélagsmiðlum þessa vikuna. Tónlistarkonan birti mynd af sér á brókinni á Instagram þar sem vel mátti sjá hversu bústinn rassinn er.
Margir telja að Madonna hafi fengið sér fyllingu í rassinn en eftir áramótatónleika sem hún hélt í lok árs 2018 var bústinn rass hennar einnig til umfjöllunar. Þá töldu margir tónlistarkonuna hafa látið bæta fullvel í rass sinn og voru ekki hrifnir.
„Hræðilegasta rassfylling í heimi,“ skrifaði einn aðdáandi á meðan annar sagði að rassalyftingin léti hana líta fáranlega út.