Leikkonan Charlize Theron segist aldrei hafa verið trúlofuð leikaranum Sean Penn. Theron og Penn voru í sambandi á árunum 2013 til 2015.
Í útvarpsviðtali við Howard Stern sagðist hún aldrei hafa verið trúlofuð leikaranum. „Hvað? Það er ekki satt, nei. Ég „giftist Sean ekki næstum því“, það er algjör vitleysa,“ sagði Theron þegar Stern spurði hana hvort hún hefði verið trúlofuð Penn.
„Nei, við fórum á stefnumót, það var bókstaflega það eina sem við gerðum. Þetta var klárlega samband og við vorum ekki í sambandi með öðrum á þessum tíma, en þetta var bara í ár. Við fluttum aldrei inn saman. Ég ætlaði aldrei að giftast honum. Þetta var aldrei þannig,“ sagði Theron.
Stern spurði Theron hvort hana hafi aldrei langað til að gifta sig í framtíðinni en Theron sagði að hjónaband hefði aldrei verið sér mikilvægt.
„Ég sver við líf barnanna minna. Ég hef aldrei verið einmana,“ sagði Theron og bætti við að hún væri þó ekki hrædd við rómantísk sambönd, hún hefði bara ekki mikinn tíma til þess.
„Ég nýt þess að fara á stefnumót en ég veit ekki hvort ég muni geta búið með einhverjum aftur. Ef ég á að segja alveg satt, þá þyrfti viðkomandi eiginlega bara að kaupa húsið við hliðina á mér. Ég veit ekki hvort ég nenni að takast á við svona rugl aftur, ég er of gömul fyrir svona kjaftæði,“ sagði Theron.
Theron á tvö börn sem hún ættleiddi árin 2012 og 2015.