Seal vill ekki að börnin fari til Þýskalands

Heidi Klum vill fara með börnin til Þýskalands.
Heidi Klum vill fara með börnin til Þýskalands. mbl.is/AFP

Heidi Klum hefur leitað til dómstóla um að fá leyfi til þess að fara með börn sín fjögur til Þýskalands þar sem verið er að taka upp Germany's Next Top Model. Fyrrverandi eiginmaður hennar Seal hefur sett sig upp á móti því af ótta við kórónuveirufaraldurinn. 

Seal og Klum deila forræði yfir börnunum fjórum sem eru á aldrinum 10 til 16 ára. Í dómsskjölunum segir Klum að samvera Seals með börnunum sé í besta falli tilviljunarkennd. Klum er vön því að ferðast með börnin þegar hún þarf að vera erlendis vegna vinnu en í þetta skipti hefur Seal ekki lagt blessun sína yfir fyrirhugaða ferð Klum.  

„Ég geri mér fulla grein fyrir þeim ráðstöfunum sem þarf að gera vegna kórónuveirunnar. Ég myndi aldrei stefna börnunum í hættu,“ segir Klum og segist um leið vera þakklát fyrir að vera í vinnu miðað við ástandið sem ríkir nú í heiminum. Í staðinn segist hún vera tilbúin til þess að leyfa börnunum að vera með Seal á jólunum. Þá er Seal einnig með breskt vegabréf og getur ferðast til Þýskalands til þess að vera með börnunum kjósi hann það.

Heidi Klum var áður gift söngvaranum Seal og eiga þau …
Heidi Klum var áður gift söngvaranum Seal og eiga þau fjögur börn saman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson