Fyrr í sumar kom nýjasta þáttaröð hinna bandarísku Good Girls á Netflix. Í lok sjötta þáttar má heyra lagið Dior með Halleluwah. Þátturinn var frumsýndur 22. mars á NBC. Framleiðendur þáttanna óskuðu eftir laginu í kjölfar samstarfs útgáfufyrirtækisins Öldu Music og HyperExtension í Los Angeles sem sérhæfir sig í að koma tónlist á framfæri í kvikmyndum og þáttum í Bandaríkjunum.
Halleluwah skipa þau Sölvi Blöndal og Rakel Mjöll Leifsdóttir og kom lagið út á samnefndri plötu árið 2013.
Í sumar gaf Rakel Mjöll út plötuna So When You Gonna með hljómsveit sinni Dream Wife og komst platan á lista yfir mest seldu plötur í Bretlandi. En hún er fjórða íslenska konan til að komast á þann lista.
Good Girls hafa verið sýndir síðan á sjónvarpsstöðinni NBC síðan 2018 og með aðalhlutverk fara þær Christina Hendricks, Mae Whitman og Retta.