Uppistandið með Trevor Noah sem átti upphaflega að fara fram 26. maí 2020 í Laugardalshöll hefur verið fært til 8. maí 2021 vegna kórónuveiruheimsfaraldursins.
Trevor er þekktasti grínisti Afríku, þáttastjórnandi Emmy-verðlaunaþáttanna The Daily Show, hefur selt upp sýningar í fimm heimsálfum og hefur skrifað, framleitt og farið með aðalhlutverkið í átta grínsérþáttum, en sá nýjasti er „Son of Patricia“ á Netflix. Hann er þekktur um allan heim fyrir að taka á pólitík og fréttum samtímans með innsæi og húmor sem hittir í mark.