Guðmundur fer í víking

Sigurd og Eivor í Assassin´s Creed: Valhalla.
Sigurd og Eivor í Assassin´s Creed: Valhalla.

Tölvuleikurinn Assassin's Creed: Valhalla kemur út í dag og fer leikarinn Guðmundur Ingi Þorvaldsson með eitt af aðalhlutverkum hans, hlutverk víkingsins Sigurd Styrbjornson. Leikurinn er sá tólfti í Assassin's Creed-syrpunni og fylgir eftir leik sem kom út fyrir tveimur árum, Assassin's Creed Odyssey. Í nýja leiknum segir af innrás víkinga í Bretland árið 873 og sá sem spilar leikinn stýrir Eivor, víkingaforingja nokkrum sem einnig getur verið kona, að sögn Guðmundar, en Sigurd er bróðir Eivarar. Leikurinn er bannaður leikmönnum undir 18 ára aldri og verður hægt að spila hann í PC-tölvum, PlayStation 4 og 5, Xbox One, Xbox Series X og S og Stadia.

Hér má sjá kynningarmyndband fyrir leikinn:

Nýja Playstation-leikjatölvan, nr. 5, er nú komin í sölu og verður hægt að spila leikinn í henni frá og með 12. nóvember. Gríðarleg vinna býr að baki leiknum sem Ubisoft, eitt helsta tölvuleikjafyrirtæki heims, framleiðir og komu 15 smærri fyrirtæki að framleiðslunni. Af fréttaflutningi að dæma undanfarna mánuði er leikurinn að öllum líkindum sá dýrasti í framleiðslu hjá Ubisoft til þessa. Þrátt fyrir að leikurinn komi út í dag hafa þegar birst umsagnir um hann og á vefnum Metacritic, þar sem tekin er saman gagnrýni ólíkra miðla, er hann nú með meðaleinkunnina 81 af 100 mögulegum. Það hlýtur að teljast harla gott.

Guðmundur Ingi Þorvaldsson.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson.

Taldi sig vera í prufu fyrir lélega víkingamynd

„Þetta er stærsta hlutverkið fyrir utan þá persónu sem þú spilar,“ segir Guðmundur um víkinginn Sigurd. Hann segir umboðsmann sinn í London hafa landað honum í prufu fyrir hlutverkið. „Þetta var allt svo mikið leyndarmál, við skildum ekkert þessa prufu. Þetta leit út fyrir að vera léleg, kanadísk víkingamynd með teiknuðum atriðum og gekk undir dulnefni, þetta hét eitthvað allt annað af því þetta er svo rosarlega mikið leyndarmál,“ segir Guðmundur. „Ég fór bara í þessa prufu, heyrði svo ekkert meira af þessu og mér var eiginlega alveg sama af því ég hélt þetta væri eitthvað glatað. Svo segir umboðsmaðurinn að menn séu spenntir fyrir því að fá mig í verkefnið og þá fór ég til London og hitti alla þessa gaura sem hafa verið að leikstýra þessu og Darby McDevitt sem býr til þessa leiki í rauninni, á þessar sögur allar og er alveg ótrúlega klár því þetta er eins og að semja tuttugu bíómyndir í einu. Hann skrifar þetta allt saman og á þetta allt, meira og minna, allt frá því fyrsti leikurinn kom út sem var um krossferðirnar,“ segir Guðmundur.

Í þröngum búningi með línum og boltum

Hann fór í aðra prufu í London og í kjölfarið var hann beðinn að leika á móti Dananum Magnus Bruun sem leikur karlkynsútgáfu Eivarar en kvenkynsútgáfuna leikur danska leikkonan Cecilie Stenspil. Guðmundur segir þá Bruun strax hafa smollið saman. „Við vissum strax að við myndum fá þetta,“ segir Guðmundur um samleik þeirra Bruuns.

Cecillie Stenspil.
Cecillie Stenspil.
Magnus Bruun
Magnus Bruun

– Þetta hlýtur að vera allt öðruvísi en að leika í bíómynd eða á leiksviði. Geturðu sagt mér hvað þú þurftir að gera?
„Þetta er í raun svolítið eins og að leika á sviði. Þú ferð í þröngan svartan búning með skærlitum línum og svo eru eins og pínulitlir tennisboltar um allan búninginn sem um 160 myndavélar í stúdíóinu nema, taka upp hreyfingarnar frá þessum ljósnæmu punktum. Síðan fær maður hjálm með fjórum myndavélum,“ útskýrir Guðmundur en þessi tækni er kölluð „motion capture“ á ensku.
Guðmundur segir það sem á eftir kom ekki svo ólíkt því að vinna á leiksviði, þegar byrjað sé að æfa leiksýningar. „Þetta er eins og risastór leikfimisalur og þar er búin til leikmynd úr dýnum, kössum og alls konar dóti svo þú stígir ekki í gegnum tré eða gangir ofan í tjörn. Þessir hlutir eru merktir inn í rýmið.“

Hér má sjá viðtal við tvo af aðalleikurum leiksins, Magnus Bruun og Cecilie Stenspil, um gerð leiksins. 

Gamaldags Shakespeare

Guðmundur segir að þar sem þetta sé tölvuleikur vilji leikstjórarnir fá „stóran leik“, svolítið eins og gamaldags Shakespeare. „Þú þarft að gefa í, tala hátt og vera með skýrar hreyfingar og ég keypti mér bara Playstation 4 með syni mínum og fór að spila Assasin's Creed: Black Flag til að skilja hvað ég væri að gera. Það varð augljóst þegar ég fór að spila þetta, þá sá ég hvernig leikstíl þurfti til,“ útskýrir Guðmundur.
Tökurnar fóru fram í Montréal í Kanada og segir Guðmundur að áhugavert hafi verið fyrir hann að kynnast þessum ógnarstóra heimi tölvuleikja. „Montréal er ein af höfuborgum tölvuleikjaiðnaðarins í heiminum og þar er fullt af leikurum í fullri vinnu við að leika í tölvuleikjum og vera áhættuleikarar í tölvuleikjum. Það er bara sérstakt fag þannig að mjög oft lékum við fram að bardaga og þá komu áhættuleikarar og skiptu við okkur og kláruðu dæmið. Það var bara ótrúlegt að sjá, þeir eru svo góðir í þessu að maður á ekki breik,“ segir Guðmundur kíminn.

Sturluð eftirvænting

Mikil eftirvænting virðist vera fyrir leiknum og bendir Guðmundur á að horft hafi verið á fyrstu stikluna fyrir leikinn um hundrað milljón sinnum fyrsta sólarhringinn eftir að hún birtist á YouTube. Tölvuleikjaunnendur bíða margir hverjir eftir nýju Playstation-tölvunni og segir Guðmundur að leikurinn verði meðal þeirra fyrstu sem hægt sé að spila í þeirri tölvu. „Það er rosaleg eftirvænting eftir þessum leik, hún er alveg sturluð,“ segir hann.
Guðmundur er spurður hversu umfangsmikil framleiðsla leiksins hafi verið, hvort hann viti til dæmis hversu mikill framleiðslukostnaðurinn hafi verið og segist hann ekki vera með slíkar tölur á hreinu. „Ég veit ekki nákvæmlega hvað þetta kostar en þeir sögðu okkur að sex til átta þúsund manns væru búin að vera vinna í þessu,“ segir Guðmundur. „Þetta er alveg sturlað,“ segir hann um umfangið og nefnir sem dæmi að rússneskt fyrirtæki, tengt Ubisoft, sérhæfi sig í því að búa til dýr í leiki fyrirtækisins. „Sumir eru að gera refi, sumir eru að búa til húsdýr, það eru alls konar teymi af forriturum,“ nefnir Guðmundur.

Leikurinn í Playstation 4 útgáfu.
Leikurinn í Playstation 4 útgáfu.

Hvað svo?

Guðmundur er spurður hvort hann eigi von á að vera boðin fleiri hlutverk í tölvuleikjum og segir hann erfitt um slíkt að spá. Hann og umboðsmaðurinn hans hafi í raun ekki hugmynd um hvert framhaldið verði. „En þetta var stórkostlega skemmtilegt ferðalag,“ segir hann um þessa reynslu sína en hann var við tökur í Kanada eina viku í mánuði um sjö mánaða skeið, fram að farsótt. Hvað sem verður geta Íslendingar nú kynnst Sigurd Styrbjornsyni og farið í víking með honum og bróður hans, gyrt sig í brók, bitið í skjaldarrendur og höggvið menn í herðar niður.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes