Lögmaðurinn Tom Girardi neitar að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni, Eriku Jayne, framfærslufé eftir að þau skilja. Jayne sótti um skilnað við Girardi eftir 20 ára hjónaband í nóvember.
Í gögnum málsins, sem People er með undir höndum, kemur fram að Jayne hafi óskað eftir skilnaðinum. Þá tók hún ekki fram hvaða dag þau hafi skilið að borði og sæng heldur skrifaði hún að það ætti eftir að meta það. Hún fór fram á framfærslufé frá Girardi eftir skilnaðinn.
Girardi hefur nú lagt fram gögn þar sem hann óskar eftir því að hann þurfi ekki að greiða henni krónu eftir skilnaðinn og hann hefur einnig óskað eftir því að hún greiði málskostnaðinn.
Mikið hefur verið fjallað um skilnaðinn en lögmannsstofan Endelson heldur því fram að skilnaður þeirra sé byggður á lygum. Í gögnum sem lögmannsstofan lagði fram til dómara sakar stofan þau um að nota skilnaðinn til að hylma yfir ólöglegan fjárdrátt.