Leikkonan og fyrirsætan Tanya Roberts, sem þekktust er fyrir hlutverk í Bond-myndinni A View to a Kill, er enn á lífi en greint hafði verið frá andláti hennar um helgina.
Greint var frá andlátinu á slúðurmiðlinum TMZ og voru fréttirnar hafðar eftir talsmanni hennar. Nú er dregið í land með fregnirnar og vísað í sama talsmann.
Roberts var flutt á spítala eftir að hún hneig niður eftir göngutúr á aðfangadagskvöld. Hún er í öndunarvél og ástand hennar er enn slæmt.
Bond-myndin A View to a Kill með þar sem Roberts lék á móti Roger Moore kom út árið 1985. Roberts lék einnig í síðustu þáttaröðinni af Charlie's Angels árið 1980 og lék Midge Pinicotti í That '70s Show.