Hollywoodstjörnurnar Ben Affleck og Ana de Armas hættu nýverið saman eftir tæplega árs samband. Affleck og de Armas eru þó enn í mjög góðu sambandi og vonast einhverjir til þess að þau byrji saman aftur.
Parið talar enn saman nokkrum sinnum á dag. „Þau elska enn hvort annað. Ben saknar hennar,“ sagði heimildarmaður Page Six.
Affleck vildi ekki eignast fleiri börn og er það meðal annars sagt hafa átt þátt í sambandsslitunum. Fólk sem þekkir til þeirra vonast til þess að þau byrji saman aftur. Yngri bróðir Bens Afflecks, Casey, vonast meira segja til þess að þau leysi vandamál sín.