Vilja fara á trúnó með ungu fólki

Sigga Dögg kynfræðingur með Dominique Sigrúnardóttur, leikkonu og leikstjóra.
Sigga Dögg kynfræðingur með Dominique Sigrúnardóttur, leikkonu og leikstjóra. mbl.is

Þjóðleikhúsið hvetur um þessar mundir einstaklinga á aldrinum 15-20 ára til að senda inn tillögur að umfjöllunarefni fyrir nýtt og spennandi verkefni undir nafninu TRÚNÓ. Verkefnið er nýr liður í stefnu Þjóðleikhússins að auka framboð á efni sérstaklega ætlað ungu fólki á framhaldsskóla aldri, að því er segir í tilkynningu frá leikhúsinu. Markmið TRÚNÓ er að ungt fólk fái tækfæri til að móta verk sem snertir á málefnum þess, á þeirra eigin forsendum, segir þar.  

„Dominique Sigrúnardóttir, leikkona og leikstjóri ásamt Siggu Dögg, kynfræðingi eru höfundar TRÚNÓ og hafa umsjón með verkefninu í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Þær hafa báðar víðtæka reynslu af því að vinna með ungu fólki, en Dominique hefur meðal annars leikstýrt tveimur leiksýningum fyrir Listafélag Verslunarskóla Íslands og Sigga Dögg hefur ferðast vítt og breytt um landið við að kenna kynfræðslu. Þær munu þróa valdar tillögur áfram og stefnt er á að sýna afraksturinn, þar sem ungir áhugaleikarar fá að spreyta sig á glænýjusviði Þjóðleikhússins, Loftinu,“ segir í tilkynningunni en Loftið er nýtt leikrými Þjóðleikhússins þar sem áhersla er lögð á að rannsaka og þróa nýtt efni og nýjar frásagnarleiðir fyrir yngri áhorfendur. Þar verður til rými til að hlusta á óheyrðar raddir, segja ósagðar sögur og deila leyndri þekkingu, staður fyrir sviðslistafólk til að stunda formtilraunir og nýsköpun í hráu rými.  Listrænn stjórnandi Loftsins er Gréta Kristín Ómarsdóttir.

Haldnar verða opnar prufur fyrir leikhóp Trúnó þegar fram líða stundir og eru ungir áhugaleikarar hvattir til að nýta þetta einstaka tækifæri til að hafa áhrif á framvindu verkefnisins með því að senda inn sínar hugmyndir inn á heimasíðu leikhússins á slóðinni hér. Tekið er við umsóknum til miðnættis 1.febrúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes