Heimshornaflakk á Skaganum

Úr heimildarmyndinni Gunda.
Úr heimildarmyndinni Gunda.

Sautján heimildarmyndir í fullri lengd og sex stuttar heimildarmyndir verða á dagskrá hátíðarinnar IceDocs sem hefst í kvöld á Akranesi með sýningu á Crock of Gold A Few Rounds with Shane MacGowan, heimildarmynd um tónlistarmanninn sem gerði garðinn frægan upphaflega með írsku hljómsveitinni The Pogues. Hátíðin stendur yfir til og með 27. júní og er aðgangur ókeypis á allar sýningar.

Ingibjörg Halldórsdóttir, stjórnandi hátíðarinnar, segir hátíðina svipaða og í fyrra hvað varðar fjölda mynda og að með styrkjum og frjálsum framlögum sé hægt að bjóða upp á fríar sýningar.

Ingibjörg Halldórsdóttir.
Ingibjörg Halldórsdóttir.

Sálarsumarið 1969

Ingibjörg er spurð að því hverjar séu aðalmyndir hátíðarinnar og nefnir hún fyrst eina sem bætt var við á síðustu stundu og náði því ekki inn í bækling hátíðarinnar. Nefnist sú Summer of Soul (or, When the Revolution Could Not Be Televised) sem hlaut bæði aðalverðlaun og áhorfendaverðlaun í flokki bandarískra heimildarmynda á Sundance-kvikmyndahátíðinni í ár. Höfundur myndarinnar er bandaríski tónlistarmaðurinn Questlove úr hljómsveitinni The Roots og segir í myndinni af menningarhátíð sem haldin var í Harlem í New York sama sumar og Woodstock-hátíðin fór fram, árið 1969. Sóttu yfir 300.000 manns hátíðina í Harlem þar sem menning og tónlist Bandaríkjamanna af afrískum uppruna var í öndvegi. Myndefni frá hátíðinni var í geymslu í yfir hálfa öld og er nú loksins orðið aðgengilegt í heimildarmyndinni sem sýnd verður á sunnudag.

„Svo er það Mole Agent frá Síle sem tilnefnd var til Óskarsverðlaunanna og Gunda sem fjallar um svínið Gunda og er eftir Viktor Kossakovskíj, þetta eru stóru myndirnar,“ segir Ingibjörg en segist þó alltaf mjög hrifin af minni myndunum. „Við erum líka með Lost Boys sem er svakaleg frásögn af finnskum strákum sem eru í neyslu, fara til Kambódíu og lenda í frekar slæmum hlutum þar,“ segir Ingibjörg og eru viðkvæmir varaðir við myndinni. Sadri Cetinkaya og Joonas Neuvonen eru höfundar myndarinnar sem er ein tekjuhæsta heimildarmynd allra tíma í Finnlandi og hefur hlotið mikla athygli og umtal víða.

Falleg mynd um gyltu og grísi

Gunda fyrrnefnd segir af samnefndri gyltu og grísum hennar og er framleidd af bandaríska verðlaunaleikaranum Joaquin Phoenix. Myndin er sýnd á IceDocs í samstarfi við Samtök grænkera á Íslandi og matur verður í boði fyrir sýningu. Munu umræður svo fara fram að henni lokinni.

Ingibjörg er spurð að því hvort myndin sé til þess gerð að fá fólk til að hætta að borða kjöt og segir hún að það sé ekki beinlínis svo. „Það er verið að fylgjast með þessari gyltu sem er úti í móa með gríslingana sína. Myndin er ofboðslega fallega tekin, öll svarthvít og maður er í rauninni bara að fylgjast með dýrunum í sveitinni. Það hefur óhjákvæmilega þau áhrif að fólk sem hefur kannski ekki velt svona málum fyrir sér finnur til samkenndar með dýrunum og þess vegna hefur hún kannski verið tengd við þessar hreyfingar,“ segir Ingibjörg um tenginguna við grænkera. Myndin er án tals og hefur líka hlotið athygli fyrir aðkomu Phoenix sem talað hefur gegn kjötáti.

Myndir hátíðarinnar fjalla um allt milli himins og jarðar og segir Ingibjörg að reynt sé að sýna alls konar sögur og flakka eins mikið um heiminn og mögulegt er. Mikil vinna hlýtur að liggja að baki skipulagningu svona hátíðar og segir Ingibjörg að hún og aðrir skipuleggjendur hafi horft á yfir þúsund myndir. „Stundum erum við með myndir sem okkur langar mikið að sýna en kannski tvær eða þrjár um svipað viðfangsefni og þá þarf að velja á milli þeirra,“ segir hún.

Boðið verður upp á ýmsa viðburði aðra en kvikmyndasýningar og má af þeim nefna tónleika, barsvar með Nielsi Thibaud Girerd og uppistand með Nick Jameson. Síðast en ekki síst ber að nefna að flestar myndanna verða aðgengilegar á vef hátíðarinnar, icedocs.is, um klukkustund eftir að sýningar hefjast í bíóhúsi Akraness, hinni fallegu Bíóhöll.

Queendom verður heimsfrumsýnd á IceDocs.
Queendom verður heimsfrumsýnd á IceDocs.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson