Fyrsti karlmaðurinn ber vitni gegn R. Kelly

Réttarhöld yfir R. Kelly fara nú fram.
Réttarhöld yfir R. Kelly fara nú fram. AFP

Fyrsti karlmaðurinn bar vitni gegn rapparanum R. Kelly í gær. Maðurinn kom fram undir dulnefninu Louis en hann var 17 ára þegar Kelly spurði „hvað hann væri tilbúinn til að gera fyrir tónlist.“ BBC greinir frá.

Áttundi dagurinn í réttarhöldunum yfir Kelly fór fram í gær. Louis lýsti því hvernig R. Kelly hafi skriðið til hans og veitt honum munnmök „þó hann hafi ekki sýnt því áhuga.“

Kelly hefur neitað öllum ásökunum. Í þetta skipti er Kelly ekki ákærður fyrir nauðgun heldur hefur ákæruvaldið ákveðið að reyna að sýna fram á að hann hafi verið höfuðpaurinn í glæpasamtökum sem misnota ungar konur og unglinga. Hann er líka ákærður í átta ákæruliðum fyrir brot á lögum um mannsal. 

Þó ákærurnar snúi ekki beint að nauðgunum eða áreitni getur ákæruvaldið notað vitnisburði um slíkt til að styðja við málstað sinn. 

Bæði vitnin í gær sögðust hafa hitt Kelly þegar þau voru undir lögaldri. Louis var 17 ára þegar hann var að vinna næturvakt á McDonalds í Chicago árið 2006. Kelly hafi nálgast hann og gefið honum símanúmerið sitt.

Hann sagði frá því hvernig Kelly hafi beðið hann um að kalla sig pabba, sem áður hefur heyrst frá fleiri vitnum. Louis lýsti því einnig hvernig Kelly hafi átt kynferðislega við annan 16 ára strák og reynt að fá þá til að stunda kynlíf fyrir framan hann. Þeir neituðu. 

Í dómsalinn kom einnig kona sem segir að Kelly hafi nauðgað henni í Miami árið 1994, þegar hún var aðeins 17 ára gömul. Konan bar vitni undir nafninu Addie. Hún lýsir atvikum svo að hún hafi verið á tónleikum með vinkonu sinni. Tveir karlmenn hafi nálgast þær og boðið þeim baksviðs eftir tónleikana. Þegar þær komu þangað hafi Kelly sent alla aðra út úr herberginu, gripið um úlnliði hennar, ýtt henni niður og nauðgað henni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson