Dýrið frumsýnt á 600 tjöldum

Dýrið verður frumsýnt á 600 tjöldum í Bandaríkjunum á morgun.
Dýrið verður frumsýnt á 600 tjöldum í Bandaríkjunum á morgun. VALERY HACHE

Kvikmyndin Dýrið eða Lamb eins og hún heitir erlendis verður sýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum. Aldrei áður hefur íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs sem segir allt um það hversu mikla trú A24, dreifingaraðili myndarinnar, hefur á henni.

Sýningar á myndinni hefjast sama dag og á James Bond en A24, dreifingaraðilar Dýrsins í Bandaríkjunum, eru vissir um að myndin fái góða aðsókn og muni höfða til yngri áhorfendahóps í Bandaríkjunum en þeirra sem sækja Bond-myndirnar.

„Við vitum að kvikmyndin Dýrið er einstök perla, aðgengileg, sorgleg og fyndin. Viðbrögðin á forsýningum hafa staðfest það og yfir tíu milljónir hafa horft á kynningarstikluna. Myndin hefur alla burði til að slá í gegn hér í Bandaríkjunum og við erum ofboðslega spennt fyrir því að frumsýna hana svona víða,“ segir David Laub hjá A24.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson