Glamúrfyrirsæta undirbýr brúðkaup

Carl Woods og Katie Price ganga nú brátt í það …
Carl Woods og Katie Price ganga nú brátt í það heilaga. Skjáskot/Instagram

Breska glamúrfyrirsætan Katie Price hefur nú fastráðið dagsetningu á brúðkaupsdag hennar og tilvonandi eiginmannsins, Carls Woods. Parið ætlaði að játast hvort öðru á síðasta ári en ófarir Price stóðu í vegi fyrir því að stóri dagurinn gæti orðið að veruleika þegar hún hlaut skilorðsbundinn dóm fyrir ölvunarakstur. 

Fyrr í vikunni uppljóstraði Price á Instagram að brúðkaupsdagurinn væri nú negldur í stein. Það staðfesti hún með því að segjast hafa bókað tíma í brúðarförðun hjá Fern Howe-Shepherd sem er þekktur förðunarfræðingur í London. Sagðist Price ekki ætla að draga úr glamúrnum á stóra deginum. Fréttamiðillinn The Sun greindi frá.

„22 er happatalan mín,“ sagði Price og gaf aðdáendum sínum færi á að giska á rétta dagsetningu sem leynd hvílir þó enn yfir.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Price gengur í það heilaga en hún á þrjú hjónabönd að baki.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson