Lilja Sif krýnd Ungfrú Ísland 2023

Lilja Sif Pétursdóttir er Ungfrú Ísland 2023.
Lilja Sif Pétursdóttir er Ungfrú Ísland 2023. Ljósmynd/Arnór Trausti Kristínarson

Ungfrú Ísland fór fram í Gamla Bíó í gærkvöldi þar sem nítján stúlkur á aldrinum 19 til 28 ára kepptu um titilinn. 

Það var Lilja Sif Pálsdóttir, sem kom fram sem Miss Capital Region, sem bar sigur úr býtum að þessu sinni og tók við titlinum af Hrafnhildi Haraldsdóttur sem var krýnd Ungfrú Ísland 2022.

Lilja er 19 ára gömul og starfar á hjúkrunarheimilinu Eir. Hún mun keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe sem mun fara fram í San Salvador í El Salvador í nóvember næstkomandi.

Í öðru sæti var hin 18 ára gamla Helena Hafþórsdóttir O'Connor, sem kom fram sem Miss Reykjavík, og hlaut hún titilinn Miss Supranational Iceland. Í þriðja sæti var hin 26 ára gamla Kolfinna Mist Austfjörð sem kom fram sem Miss Húsavík.

Lilja Sif og Hrafnhildur Haraldsdóttir.
Lilja Sif og Hrafnhildur Haraldsdóttir. Ljósmynd/Arnór Trausti Kristínarson
Stúlkurnar sem lentu í fyrstu fimm sætunum alsælar með kvöldið.
Stúlkurnar sem lentu í fyrstu fimm sætunum alsælar með kvöldið. Ljósmynd/Arnór Trausti Kristínarson
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson