Arnar Grant og Ásdís Rán setja stefnuna á Ungfrú Ísland

Arnar Grant og Ásdís Rán Gunnarsdóttir tóku vel á því …
Arnar Grant og Ásdís Rán Gunnarsdóttir tóku vel á því á æfingu. Skjáskot/Instagram

Það er alltaf nóg um að vera hjá fyrirsætunni Ásdísi Rán Gunnarsdóttur. Nú segist hún hafa sett stefnuna á að vinna titilinn Ungfrú Ísland fyrir fimmtugt og hefur fengið einkaþjálfarann Arnar Grant til að aðstoða sig við undirbúning keppninnar. 

Ásdís Rán birti sjóðheita speglamynd úr ræktinni af þeim Arnari á Instagram og útskýrði fyrir fylgjendum sínum hvert markmiðið væri. 

„Þar sem búið er að létta öllum reglum af Ungrú Ísland þá ákváðum við Arnar Grant að taka æfingunum alvarlega og í framhaldi auðvitað rústa keppninni. Þannig að ég geti borið með sóma titlana Ísdrottning og Ungfrú Ísland fyrir fimmtugt,“ skrifaði Ásdís við myndina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál