Opnar sig um allt ofbeldið

Evan Rachel Wood fer í saumana á ofbeldinu sem hún …
Evan Rachel Wood fer í saumana á ofbeldinu sem hún varð fyrir. AFP

Evan Rachel Wood segir að fyrrverandi unnusti hennar Marilyn Manson hafi með meðvituðum hætti brotið hana niður andlega og einangrað hana. Hann refsaði henni fyrir minnstu mistök og hótaði henni. Þetta kemur fram í hlaðvarpsþættinum Navigating Narcissism Thursday.

„Hann hélt mér vakandi á nóttunni í kókaínvímu og talaði illa um mig og hvað heimurinn væri vondur og allt fólkið í kringum okkur væri vont. Þá fór hann að telja upp allt sem ég gerði vitlaust, hann hafði ýmsar grunsemdir um hann og loks fór hann að leggja heimilið í rúst.“

Wood leið eins og hún væri föst í sambandinu og gæti ekki farið. 

„Þá byrjaði heilaþvotturinn og ofbeldið. Hann hætti ekki fyrr en maður gafst upp og varð sammála honum,“ segir Wood sem upplifði mikinn kvíða og örvæntingu í sambandinu. Hennar sterkasti leikur hafi verið að þykjast vera dauð svo að hann missti áhuga á henni.

„Ég var svo hrædd við þessa manneskju, mér hafði verið hótað svo margoft. Mér leið þannig að ef ég væri þarna áfram þá væri ég hvort sem er dauð. Það var eins og dauðarefsing að vera þarna í þessu sambandi. En að fara var svo ógnvekjandi því eitthvað hræðilegt gæti komið fyrir mig. En á endanum var ég dauð hvort sem er, ég gat allt eins reynt að flýja.“

Wood segir þetta ofbeldi hafi haft mikil áhrif á hana og heilsu hennar. Hún fékk meðal annars flogaköst vegna álagsins og á endanum hafi hún þurft að flýja til þess að bjarga heilsu sinni.

Marilyn Manson og Evan Rachel Wood voru par. Hún var …
Marilyn Manson og Evan Rachel Wood voru par. Hún var 18 ára þegar þau kynntust en hann 37 ára. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson