Eiga margt sameiginlegt þrátt fyrir 20 ára aldursbil

Bradley Cooper og Gigi Hadid eru að stinga saman nefjum.
Bradley Cooper og Gigi Hadid eru að stinga saman nefjum. Samsett mynd

Netheimar fóru á hliðina í vikunni þegar greint var frá því að leikarinn Bradley Cooper og ofyrfyrirsætan Gigi Hadid væru að stinga saman nefjum þessa dagana. Þau eru sögð hafa kynnst í gegnum sameiginlega vini og hafa varið miklum tíma saman undanfarna daga.

Cooper og Hadid eru sögð eiga margt sameiginlegt þrátt fyrir 20 ára aldursbil, en Cooper er 48 ára en Hadid 28 ára. 

Eru bæði einstæðir foreldrar

„Þau eru bæði einstæðir foreldrar ungra dætra og deila svipaðri kímnigáfu,“ sagði heimildamaður Us Weekly, en Cooper á sex ára gamla dóttur með fyrrverandi kærustu sinni Irinu Shayk og Hadid á þriggja ára dóttur með fyrrverandi kærasta sínum Zyan Malik. 

Heimildarmenn segja Hadid opna fyrir því að kynnast Cooper betur, en hyggist ekki kynna dóttur sína fyrir neinum sem hún er með nema hún sé í algjörlega skuldbundnu sambandi. „Það er enn of snemmt að vita hvert hlutirnir gætu stefnt.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson