Sjónvarpsserían Stóri bróðir tekur á sig mynd

Það er til mikils að hlakka.
Það er til mikils að hlakka. Samsett mynd

Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið ACT4 hefur ráðið Anítu Briem, Önnu Gunndísi Guðmundsdóttur og Teit Magnússon sem höfunda til að skrifa sjónvarpsþáttaröð byggða á bókinni Stóra bróður eftir Skúla Sigurðsson. Ólafur Darri Ólafsson, einn eigenda ACT4, verður yfirhöfundur í höfundaherberginu. 

„Við hjá ACT4 erum á lokametrunum í samningaviðræðum við stóran erlendan aðila um þetta verkefni og nú er komið að því að byrja að breyta bók í sjónvarpsþætti. Ég er mjög ánægður með að hafa fengið þetta öfluga teymi til að skrifa þáttaröðina með mér,“ segir Ólafur Darri Ólafsson. 

„Við erum byrjuð að kafa og ég held að útkoman verði mögnuð. Bókin er frábær grunnur og þessir höfundar sprengja á mér hausinn á hverjum degi,“ útskýrir Ólafur Darri.

Þarna eru komnir saman miklir reynsluboltar í faginu

Aníta og Anna Gunndís eru leikkonur og hafa komið að fjölmörgum verkefnum innanlands sem erlendis, en auk þess hafa þær báðar reynslu af höfundastörfum. Aníta skrifaði þáttaröðina Svo lengi sem við lifum sem sýnd var á Stöð 2 síðasta haust.

Anna Gunndís hefur M.F.A. gráðu í handritaskrifum og leikstjórn frá Tisch School of the Arts frá NYU og Teitur er menntaður í handritaskrifum og leikstjórn frá Kvikmyndaskóla Íslands og hefur auk þess skrifað og leikstýrt kvikmyndinni Uglur sem var frumsýnd á RIFF 2021.

Anna Gunndís, Aníta og Teitur munu ásamt Ólafi Darra skrifa …
Anna Gunndís, Aníta og Teitur munu ásamt Ólafi Darra skrifa sjónvarpsþáttaseríu byggða á spennusögunni Stóra bróður. Samsett mynd

Bókin Stóri bróðir er fyrsta bók Skúla Sigurðssonar og hlaut íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann árið 2022 og hefur verið tilnefnd til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins í ár. Bókaútgáfan Drápa gaf út Stóra bróður.

ACT4 er sjálfstætt íslenskt sjónvarps- og kvikmyndaframleiðslufyrirtæki stofnað af framleiðendum, höfundum og leikurum sem hafa átt farsælan feril.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson