Hvaða Love is Blind-pör eru enn saman?

Hvaða Love is Blind-pör eru enn saman?
Hvaða Love is Blind-pör eru enn saman? Samsett mynd

Á dögunum var lokaþáttur sjöttu þáttaraðar raunveruleikaseríunnar Love is Blind sýndur á Netflix með tilheyrandi dramatík. Þættirnir hafa notið gífurlegra vinsælda og vakið athygli margra, en markmiðið með þættinum er að hjálpa fólki að finna hina einu sönnu ást út frá persónuleika en ekki útliti.

Þó velgengni í stefnumótaþáttum sé í besta falli lítil eru nokkur pör úr Love is Blind-þáttunum sem eru enn saman í dag. 

Lauren Speed-Hamilton og Cameron Hamilton

Hamilton-hjónin tóku þátt í fyrstu þáttaröð Love is Blind og eru enn gift í dag, en þau gengu í hjónaband þann 16. nóvember 2018 og héldu því upp á fimm ára brúðkaupsafmæli í nóvember 2023. 

Hamilton-hjónin nutu mikilla vinsælda meðal áhorfenda.
Hamilton-hjónin nutu mikilla vinsælda meðal áhorfenda. Skjáskot/Instagram

Amber Pike og Matt Barnett

Amber Pike og Matt Barnett tóku einnig þátt í fyrstu þáttaröð Love is Blind og eru enn gift, en líkt og Hamilton-hjónin héldu þau upp á fimm ára brúðkaupsafmæli í nóvember síðastliðnum. 

Ástarsaga Pike og Barnett var ekki fullkomin í þáttunum, en …
Ástarsaga Pike og Barnett var ekki fullkomin í þáttunum, en þau eru hamingjusöm í dag. Skjáskot/Instagram

Brennon Lemieux og Alexa Lemieux

Lemieux-hjónin kynntust í þriðju þáttaröð Love is Blind þar sem þau urðu yfir sig ástfangin og eru það enn í dag. Þau fögnuðu tveggja ára brúðkaupsafmæli í júlí 2023, en í janúar síðastliðnum sögðu þau frá því að þau ættu von á sínu fyrsta barni. 

Lemieux-hjónin eiga von á sínu fyrsta barni saman.
Lemieux-hjónin eiga von á sínu fyrsta barni saman. Skjáskot/Instagram

Matt Bolton og Colleen Reed

Líkt og Lemieux-hjónin kynntust Matt Bolton og Collen Reed í þriðju þáttaröð Love is Blind og giftu sig í júní 2021. Þau eru enn gift í dag og fluttu inn saman í júní 2023, en fyrir það höfðu þau búið á sitthvorum staðnum. 

Bolton og Reed eru nýlega flutt inn saman.
Bolton og Reed eru nýlega flutt inn saman. Skjáskot/Instagram

Tiffany Pennywell Brown og Brett Brown

Brown-hjónin voru þátttakendur í fjórðu þáttaröð Love is Blind og giftu sig í maí 2022. Það styttist því í að þau fagni tveggja ára brúðkaupsafmæli.

Brown-hjónin heilluðu áhorfendur upp úr skónum.
Brown-hjónin heilluðu áhorfendur upp úr skónum. Skjáskot/Instagram

Chelsea Griffin Appiah og Kwame Appiah

Appiah-hjónin kynntust einnig í fjórðu þáttaröð Love is Blind og giftu sig í maí 2022 þrátt fyrir að móðir Kwame hafi ekki samþykkt hjónabandið til að byrja með. Þau eru enn saman í dag.

Appiah-hjónin fóru í brúðkaupsferð til Santorini!
Appiah-hjónin fóru í brúðkaupsferð til Santorini! Skjáskot/Instagram

Bliss Poureetezadi-Goytowski og Zack Goytowski

Goytowski-hjónin tóku líka þátt í fjórðu þáttaröð Love is Blind, en vegferð þeirra er þó ólík vegferð annarra para þar sem þau trúlofuðust ekki eins og flest pör gera í þættinum. Í fyrstu bað Zack Irinu Solomonova en þau hættu fljótt saman. Í kjölfarið hittust Zack og Bliss og urðu ástfangin, en í dag eru þau gift og eiga von á sínu fyrsta barni saman. 

Goytowski-hjónin eiga einnig von á sínu fyrsta barni saman.
Goytowski-hjónin eiga einnig von á sínu fyrsta barni saman. Skjáskot/Instagram

Milton Johnson og Lydia Velez Gonzalez

Milton Johnson og Lydia Velez Gonzalez kynntust í fimmtu þáttaröð Love is Blind. Þótt aldursmunurinn hafi í fyrstu valdið Lydiu áhyggjum gengu þau í það heilaga í júní 2022. Þau eru enn gift en búa þó á sitthvorum staðnum vegna vinnu.

Þrátt fyrir að búa á sitthvorum staðnum eru Johnson og …
Þrátt fyrir að búa á sitthvorum staðnum eru Johnson og Gonzalez enn hamingjusöm. Skjáskot/Instagram

Amy Cortés og Johnny McIntyre

Amy Cortés og Johnny McIntyre eru nýjustu Love is Blind-hjónin, en þau fundu ástina í sjöttu þáttaröð Love is Blind. Þau voru jafnframt eina parið í nýjustu þáttaröðinni þar sem báðir aðilar sögðu „já“ við altarið. 

Amy Cortés og Johnny McIntyre sögðu bæði já!
Amy Cortés og Johnny McIntyre sögðu bæði já! Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson