Elsti maðurinn sem notar stinningarlyfið viagra í Singapúr er 99 ára gamall.
„Ég vona að ég geti nýtt mér þessa meðferð þegar ég verð 99 ára," sagði Li Man Kay, þvagfærasérfræðingur, sem gerði nýlega rannsókn á 1520 sjúklingum sem nota viagra í Singapúr og birti niðurstöður sínar í alþjóðlegu tímariti um þvagfærasýkingar.
Kay sagði að maðurinn væri afar vel á sig kominn miðað við aldur og að hann væri giftur konu á sjötugsaldri.
Samkvæmt nýlegri könnun smokkaframleiðandans Durex hafa íbúar í Singapúr kynmök að jafnaði 96 sinnum á ári og voru neðstir meðal þjóðanna sem könnunin náði til.