Herm þú mér hver fegurst er...

Júlía Tymoshenko, forsætisráðherra Úkraínu, er flottasti þjóðaleiðtogi heimsins að mati …
Júlía Tymoshenko, forsætisráðherra Úkraínu, er flottasti þjóðaleiðtogi heimsins að mati listans Hottest Heads of State. Reuters

Júlía Tymoshenko, forsætisráðherra Úkraínu, er flottasti þjóðarleiðtogi heimsins samkvæmt listanum Hottest Heads of State. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs er í 2. sæti Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, vermir 68. sætið og er Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans næstur á eftir henni.

Barack Obama, Bandaríkjaforset, er í 15. sæti en Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, er í því 24. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, verður að sætta sig við 88. sætið. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, er í 115. sæti.

Muammar al-Gaddafi, byltingarleiðtogi Líbíumanna lenti í neðsta sæti listans sem er það 217. Næstur á undan honum er Kim Jong-il þjóðarleiðtogi Norður-Kóreu. 

Aðstandendur listans segja að borgarar heimsins hafi of lengi þurft að þjást undir harðri stjórn óaðlaðandi leiðtoga. Sumir segi að það sé einfaldlega þannig að óaðlaðandi fólk haldi dauðahaldi um valdataumana og muni aldrei sleppa þeim

Listafólkið kveðst vona að með því að raða þjóðaleiðtogum eftir útliti vonist það til að opna augu kjósenda fyrir „vandamálinu“ og að þegnar ófríðra leiðtoga rísi upp og efni til byltingar - eða þannig... 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson