Hollenskur veitingastaður ætlar að hefja sölu á mayonesi með kannabisbragði til þess að dýfa frönskum kartöflum í. Hins vegar verður ekki hægt að komast í vímu við átið því ekkert THC verður í mayonesinu.
Eigandi Manneken Pis, Albert van Beek , segist hafa fengið hugmyndina í vinnunni því hann finni lyktina af kannabis koma frá kaffihúsum í miðborg Amsterdam.
Van Beek segir að þetta snúist um bragð ekki áhrif enda sérhæfi staðurinn sig í sósugerð og sífellt sé reynt að auka fjölbreytnina á því sviði.