Englendingar geta farið á krána og á veitingastaði á morgun eftir langt hlé er nýjar sóttvarnareglur taka þar gildi.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, biður fólk um að fara varlega þrátt fyrir að slakað sé á reglum. Meðal annars verða verslanir sem selja annað en nauðsynjavörur opnaðar sem og líkamsræktarstöðvar og hárgreiðslustofur.
Neytendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða tveggja metra regluna þegar komið er í verslanir en fastlega er gert ráð fyrir að margir muni notfæra sér að geta komist í aðrar búðir en matvöru- og lyfjaverslanir eftir langt hlé.
Vonir standa til að hægt verði að heimila ferðalög til annarra landa í næstu aðgerðum, það er þegar slakað verður enn frekar á sóttvarnareglum 17. maí. Johnson segir að það sé samt óvíst – það fari eftir þróuninni annars staðar í heiminum. Upplýst verði um það með góðum fyrirvara að því er segir á vef BBC.
Guardian greinir frá því að þekktir vísindamenn vari við því að hætta sé á þriðju bylgju Covid-19 í Bretlandi með aðgerðum ríkisstjórnarinnar, að draga úr hömlum. Opinberar tölur sýni að á ákveðnum svæðum geisi faraldurinn enn af fullum þunga. Vísindamennirnir saka stjórnvöld um að standa ekki við gefin heit um að fara eftir tölum ekki dagsetningum þegar kemur að afléttingu sóttvarnareglna.