Færri dauðsföll á Íslandi en búast hefði mátt við

Kórónuveiran Covid-19 | 31. janúar 2024

Færri dauðsföll á Íslandi en búast hefði mátt við

Dauðsföll á Covid-19 tímanum voru færri en búast hefði mátt við miðað við fólksfjölgun og aldurssamsetningu þjóðar. Aðeins á Nýja-Sjálandi var hlutfall umframdauðsfalla lægra.

Færri dauðsföll á Íslandi en búast hefði mátt við

Kórónuveiran Covid-19 | 31. janúar 2024

Heilbrigðisráðuneytið telur niðurstöðu OECD benda til þess að sóttvarnarráðstafanir hafi …
Heilbrigðisráðuneytið telur niðurstöðu OECD benda til þess að sóttvarnarráðstafanir hafi verið árangursríkar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dauðsföll á Covid-19 tímanum voru færri en búast hefði mátt við miðað við fólksfjölgun og aldurssamsetningu þjóðar. Aðeins á Nýja-Sjálandi var hlutfall umframdauðsfalla lægra.

Dauðsföll á Covid-19 tímanum voru færri en búast hefði mátt við miðað við fólksfjölgun og aldurssamsetningu þjóðar. Aðeins á Nýja-Sjálandi var hlutfall umframdauðsfalla lægra.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef heilbrigðisráðuneytisins. Vísað er til nýlegrar skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar (OECD). Segir þar að þetta bendi til þess að sóttvarnaraðgerðir á Íslandi á tímum heimsfaraldursins hafi verið árangursríkar. 

„Þegar leiðrétt hefur verið fyrir lýðfræðilegum breytum og tekið er tillit til fólksfjölgunar leiðir samanburður í ljós að dauðsföll í OECD-ríkjunum voru að meðaltali 5,3% fleiri á árunum 2020-2022 en á samanburðarárunum fyrir heimsfaraldur Covid-19. Munur milli landa hvað þetta varðar er hins vegar verulegur. Níu lönd af 41 skera sig úr, þar sem dauðsföll á Covid-árunum voru færri en búast mátti við miðað við árin fyrir heimsfaraldurinn. Þetta eru Nýja-Sjáland (-4,4%), Ísland (-3,9%), Noregur, Írland, Austurríki, Kórea, Svíþjóð, Lúxemborg og Ísrael. Þau ríki OECD þar sem umframdauðsföll voru langflest eru Kólumbía (+23,5%) og Mexíkó (+30,5%),“ segir í tilkynningu.

Einungis voru færri umfram dauðsföll á Nýja Sjálandi.
Einungis voru færri umfram dauðsföll á Nýja Sjálandi.

Leiðrétt fyrir lýðfræðilegar breytur 

Höfundar skýrslunnar gera ítarlega grein fyrir þeirri aðferðafræði sem samanburðurinn byggir á, enda hefur áður verið birtur samanburður um umframdauðsföll á tímum Covid-19 sem sýnir aðrar niðurstöður. Í fyrri samanburði hefur ekki verið leiðrétt fyrir ýmsum lýðfræðilegum breytingum sem skipta máli svo samanburðurinn sé raunhæfur. Þar vegur þungt ört hækkandi hlutfall aldraðra og fólksflutningar sem hafa leitt til umtalsverðra breytinga á íbúafjölda auk aldurssamsetningar einstakra landa. Heilt yfir hefur hlutfall 65 ára og eldri hækkað um 19% á svæðinu frá 2015 til 2022. Í meðfylgjandi skýrslu hafa þessar leiðréttingar verið gerðar,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is