Yfir tveir milljarðar í viðspyrnustyrki

Kórónukreppan | 15. apríl 2021

Yfir tveir milljarðar í viðspyrnustyrki

Yfir tveir milljarðar króna hafa verið greiddir í viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar á meðal einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Yfir tveir milljarðar í viðspyrnustyrki

Kórónukreppan | 15. apríl 2021

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Yfir tveir milljarðar króna hafa verið greiddir í viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar á meðal einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Yfir tveir milljarðar króna hafa verið greiddir í viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar á meðal einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Í gær höfðu Skattinum, sem fer með framkvæmd úrræðisins, borist um 2.050 umsóknir um styrkina og höfðu um 1.740 verið afgreiddar, að því er segir í tilkynningu.

Þá hafa nú um 9,5 milljarðar króna verið greiddir í tekjufallsstyrki til rekstraraðila og um 2, 3 milljarðar króna í lokunarstyrki.

Síðustu mánuði hafa ríflega 80 milljarðar verið greiddir í fjölbreyttan stuðning í úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins að frátöldum heimildum til útgreiðslu séreignarsparnaðar. Á fimmta þúsund rekstraraðilar og nær fjörutíu þúsund einstaklingar hafa nýtt stuðninginn.

Sem dæmi hafa um 9,5 milljarðar króna verið veittir í stuðningslán til um 960 rekstraraðila en lánunum er ætlað að styðja við smærri fyrirtæki sem glíma við erfiðleika. Lánin nýtast litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem orðið hafa fyrir miklum samdrætti.

Þá hafa um sjö milljarðar króna verið endurgreiddir aukalega af virðisaukaskatti (VSK) vegna margs konar framkvæmda en endurgreiðslurnar nýtast einkum einstaklingum og félögum á borð við sveitarfélög, almannaheillafélög og íþróttafélög, segir í tilkynningunni.

mbl.is