Það var bjart yfir borgurum þessa lands þegar fatahönnuðurinn Hildur Yeoman sýndi splunkunýja línu í verslun sinni við Laugaveg á dögunum.
Línan heitir Splash og er alger gleðisprengja eins og sést á myndunum. Línan er innblásin af öllu sem sólþyrstir heimsborgar elska eða sól, strandpartý, sundferðir og sumarævintýri. Í teitinu léku hafmeyjarnar í hljómsveitinni Cyber nokkur lög.
Ef það er eitthvað sem við landsmenn eigum skilið eftir þennan langa og leiðinlega vetur þá eru það lífleg föt, fjör og ferðavinningar. Í línunni leikur Hildur sér með kvenleg snið, bjarta liti og efni sem glitra í sólinni eða nákvæmlega það sem okkur vantar þessa dagana.