Íslenskir áhrifavaldar klæddust íslenskri hönnun þegar opnunarpartí skemmtistaðarins Bankastrætis fór fram í gærkvöldi. Skemmtistaðurinn verður opnaður formlega í kvöld. Brigitta Líf Björnsdóttir, Sunneva Eir Einarsdóttir, Ástrós Traustadóttir og Kristín Pétursdóttir voru meðal þeirra sem klæddust fötum frá Hildi Yeoman.

Áhrifavaldurinn og viðskiptafræðingurinn Sunneva Eir Einarsdóttir klæddist grænum glansandi toppi frá Hildi Yeoman og grænum buxum í stíl. Toppurinn kostar 29.900 og buxurnar 49.900. Samkvæmisdansarinn Ástrós Traustadóttir úr Allir geta dansað var í eins bol og Sunneva nema bláum. Við bláa bolinn var hún síðan í skærbláum buxum sem kosta 39.900 króur.
Birgitta Líf Björnsdóttir rekur staðinn en hún klæddist bleikum kjól sem einnig er frá Hildi Yeoman. Bleiki kjólinn sem Birgitta Líf klæddist kostar 45.900 krónur.
Leikkonan Kristín Pétursdóttir var einnig mætt í kjól frá Hildi Yeoman. Kjóllinn hennar var ekki úr glansefni ólíkt fötum vinkvenna hennar. Svo virðist sem fötin hafi verið afar vinsæl meðal þeirra sem mættu í opnunarpartíið.