83 kórónuveirusmit hafa greinst innanlands eftir sýnatöku gærdagsins. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. 42 voru í sóttkví við greiningu eða rétt rúmur helmingur þeirra sem greindust.

Eitt virkt smit greindist á landamærunum.
Alls eru nú í 1.226 í einangrun og 2.177 í sóttkví. Alls eru nú tólf á sjúkrahúsi en þeir voru tíu í gær.
Af þeim sem greindust í gær greindust 58 í einkennasýnatöku og 25 við sóttkvíar- og handahófsskimanir. 51 er fullbólusettur og 22 óbólusettir. Þá er bólusetning hafin hjá þremur.
Smittölur síðustu daga hafa verið talsvert hærri en tölur gærdagsins. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarnadeildar, sagði í samtali við mbl.is að viðbúið væri að færri sýni yrðu tekin yfir verslunarmannahelgina. Koma verður í ljós hvort bæði sýnum og smitum eigi eftir að fjölga eftir helgi.
Í fyrradag höfðu 145 smit greinst þegar tölur voru uppfærðar. Tölur fyrir föstudaginn hafa nú verið uppfærðar að nýju og greindust alls 154, sem er mesti fjöldi smita sem greinst hefur á einum degi frá því faraldurinn hófst.
Fréttin hefur verið uppfærð.