Átta sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19, þar af eitt barn. Fjórir af þeim sem liggja á spítala eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél. Þetta kemur fram á vef Landspítala.

Í gær lágu sjö á spítala vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu, svo einn hefur bæst við á spítala á milli daga, þar af einn á gjörgæslu.
„Nú eru 352 sjúklingar, þar af 128 börn, í COVID göngudeild spítalans. Enginn er metinn rauður en 6 gulir og þurfa nánara eftirlit,“ segir á vef Landspítala.
Spítalinn er nú á óvissustigi. Það er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala.
Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls.