Samkvæmt heimildum mbl.is hafa að minnsta kosti þrír úr áhöfn togarans Bergeyjar VE greinst með Covid-19 en skipið kom í land í gærkvöldi. Skipverjar tóku sjálfspróf um borð en niðurstöður þeirra urðu til þess að togarinn hélt aftur í land.

Allir skipverjar munu fara í sýnatöku í dag sem mun endanlega skýra hve útbreitt smitið var meðal starfsmanna togarans sem er í eigu Síldarvinnslunnar.
Að sögn Gunnþórs Ingvasonar, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar, var skipið komið á miðin þegar grunurinn um smit hafi vaknað. Eftir jákvæða niðurstöðu úr hraðprófum hafi verið siglt heim til Eyja:
„Þetta er auðvitað hundleiðinlegt að fá þetta en það er alveg ljóst um leið og við tökum sýni um borð. Menn eru náttúrulega bara einangraðir um leið og grunur kemur upp og haft samband við gæsluna og fylgt öllum verklagsreglum.“