Milljónir manna vinna nú að heiman í Peking, höfuðborg Kína og hefur fjölmörgum neðanjarðarlestarstöðvum í borginni verið lokað til að reyna að hindra útbreiðslu kórónuveirunnar.

Kínverjar hafa haldið sig við núllstefnu í baráttunni við veiruna, ólíkt flestum öðrum löndum, með ströngu útgöngubanni. Sú leið virðist lítið ganga í baráttunni við Ómikron-afbrigði veirunnar og er þolinmæði margra íbúa löngu á þrotum.
Samkvæmt opinberum tölum greindust í dag 50 manns með veiruna í Peking.
Í gær var gefin út tilskipun þess efnis að 3,5 milljónir manna ættu að sinna vinnu sinni að heiman til að koma í veg fyrir útbreiðslu.
Talið er að borgaryfirvöld í Peking óttist mjög allsherjar útgöngubann og afleiðingar þess en útgöngubann hefur verið í gildi í borginni Shanghai frá því í byrjun apríl.
Þar hefur þrátt fyrir útgöngubannið ekkert gengið að halda veirunni niðri og er skortur á mat og öðrum nauðsynjavörum, auk þess sem íbúar eru orðnir langþreyttir á ástandinu.