Beint: Fundað um auðlindina á Ísafirði

Fiskveiðistjórnunin | 25. október 2022

Beint: Fundað um auðlindina á Ísafirði

Fyrsti opni fundurinn undir merkjum „Auðlindarinnar okkar“ fer fram í  Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Fundurinn er sá fyrsti af fjórum sem haldnir verða um land allt í tilefni af umfangsmikilli stefnumótunnarvinnu stjórnvalda í málefnum fiskveiðiauðlindarinnar.

Beint: Fundað um auðlindina á Ísafirði

Fiskveiðistjórnunin | 25. október 2022

Opinn fundur um fiskveiðiauðlindina fer fram í Edinborgarhúsinu.
Opinn fundur um fiskveiðiauðlindina fer fram í Edinborgarhúsinu. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Fyrsti opni fundurinn undir merkjum „Auðlindarinnar okkar“ fer fram í  Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Fundurinn er sá fyrsti af fjórum sem haldnir verða um land allt í tilefni af umfangsmikilli stefnumótunnarvinnu stjórnvalda í málefnum fiskveiðiauðlindarinnar.

Fyrsti opni fundurinn undir merkjum „Auðlindarinnar okkar“ fer fram í  Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Fundurinn er sá fyrsti af fjórum sem haldnir verða um land allt í tilefni af umfangsmikilli stefnumótunnarvinnu stjórnvalda í málefnum fiskveiðiauðlindarinnar.

Hinir fundirnir verða haldnir á Reyðarfirði 1. nóvember, Vestmannaeyjum 8. nóvember og Akureyri 15. nóvember. Auk þess að vera í beinu streymi er hægt að senda inn spurningar í gegnum netið (sjá neðst í fréttinni).

Fundarstjóri fundarins á Ísafirði er Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar. Rebekka Hilmarsdóttir sérfræðingur á skrifstofu sjávarútvegs og fyrrum bæjarstjóri Vesturbyggðar mun halda erindi um verkefnið. Auk þess taka þátt í fundinum þau Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri matvælaráðuneytis, Halla Jónsdótti úr starfshópnum Umgengni og framkvæmdastjóri Optitog, Katrín Júlíusdóttir úr starfshópnum Samfélag og fyrrum ráðherra og Óskar Veigu Óskarsson úr starfshópnum Tækifæri og sölustjóri Marel.

 

mbl.is