Stórstjarnan Jennifer Lopez hefur verið fyrir augum almennings frá því hún kom fyrst fram sem dansari í In Living Color árið 1991. Lopez á að baki glæstan feril sem tónlistarkona, leikari og dansari.

Þrátt fyrir að hafa verið í sviðsljósinu í yfir 30 ár leynir söngdívan á sér, en hún prýðir nýjustu forsíðu tímaritsins Vogue. Tímaritið tók saman fimm staðreyndir um Lopez sem fæstir kannast við.
1. Lopez var áður varadansari fyrir Janet Jackson
Lopez lék í tónlistarmyndbandi við smáskífu Janet árið 1993, That's the Way Love Goes. Hún afþakkaði þó að fara í tónleikaferðalag með Janet þar sem Lopez vildi einbeita sér að eigin ferli.
2. Lopez var ekki fyrst til að klæðast goðsagnakennda Versace-kjólnum
Það muna líklega flestir eftir blágræna Versace-kjólnum sem Lopez klæddist á Grammy-verðlaununum árið 2000. Hún var þó ekki sú fyrsta til að klæðast kjólnum, en Spice Girl-meðlimurinn Geri Halliwell var í honum á NRJ-tónlistarverðlaununum í Frakklandi mánuði áður.
3. Lopez hefur keppt í þríþraut
Lopez er í frábæru formi og þekkt fyrir að vera dugleg að rækta líkamann, en árið 2008 kláraði hún Nautica Malibu-þríþrautina á tveimur klukkustundum, 23 mínútum og 28 sekúndum.
4. Lopez elskar raunveruleikasjónvarp
Í viðtali við Vanity Fair viðurkenndi Lopez ást sína á raunveruleikasjónvarpi, og þá sérstaklega á raunveruleikaþáttunum Mob Wives. Þættirnir fjallar um líf nokkurra kvenna sem búa í New York-borg og eiga það sameiginlegt að fjölskyldumeðlimir þeirra og eiginmenn hafa verið handteknir fyrir glæpi sem tengjast bandarísku mafíunni.
5. Lopez er eina konan sem hefur verið með kvikmynd og lag í efsta sæti vinsældalista Bandaríkjanna
Lopez skráði sig í sögubækurnar árið 2001 þegar kvikmynd hennar The Wedding Planner og önnur plata hennar sátu báðar á toppnum á vinsældalista sömu vikuna í Bandaríkjunum. Það er því óhætt að segja að Lopez sé ansi fjölhæfur listamaður.