Strandveiðifélag Íslands boðar til mótmæla

Strandveiðar | 14. júlí 2023

Strandveiðifélag Íslands boðar til mótmæla

Strandveiðifélag Íslands boðar til mótmælaaðgerða vegna stöðvunar á strandveiðum.  

Strandveiðifélag Íslands boðar til mótmæla

Strandveiðar | 14. júlí 2023

Mynd úr safni sem tekin er á Bolungarvík.
Mynd úr safni sem tekin er á Bolungarvík. mbl.is/Árni Sæberg

Strandveiðifélag Íslands boðar til mótmælaaðgerða vegna stöðvunar á strandveiðum.  

Strandveiðifélag Íslands boðar til mótmælaaðgerða vegna stöðvunar á strandveiðum.  

Þetta kemur fram á Facebook-síðu viðburðar sem Strandveiðifélagið efnir til.

Þá kemur fram að safnast verður saman við Hörpu á morgun, laugardag, klukkan 12 og gengið að Austurvelli. Strandveiðifélagið hvetji vini og velunnara til að mæta og mótmæla stöðvun umhverfisvænstu fiskveiða við Íslands strendur, kemur fram.

Stöðvunin sé reiðarslag fyrir strandveiðimenn og brothættar byggðir hringinn í kringum landið. 

Trillukarlar og konur eru hvött til að klæðast sjóstökkum, segir á Facebook-síðu viðburðarins.

mbl.is