Sitt sýnist hverjum í VG

Strandveiðar | 1. júní 2023

Sitt sýnist hverjum í VG

Enn er ekki vitað hvort frumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra (VG), um að taka að nýju upp svæðisskiptingu strandveiða, verði afgreitt fyrir þinglok 9. júní næstkomandi, að því er fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins.

Sitt sýnist hverjum í VG

Strandveiðar | 1. júní 2023

Annars vegar strandveiðibáturinn Sigrún Hrönn og hinsvegar grásleppubáturinn Ásdís sem …
Annars vegar strandveiðibáturinn Sigrún Hrönn og hinsvegar grásleppubáturinn Ásdís sem kom með um 6 tonn að landi. - Strandveiðar - Húsavík mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Enn er ekki vitað hvort frumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra (VG), um að taka að nýju upp svæðisskiptingu strandveiða, verði afgreitt fyrir þinglok 9. júní næstkomandi, að því er fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins.

Enn er ekki vitað hvort frumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra (VG), um að taka að nýju upp svæðisskiptingu strandveiða, verði afgreitt fyrir þinglok 9. júní næstkomandi, að því er fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG í Norðausturkjördæmi, hefur áður lýst yfir stuðningi við frumvarp Svandísar, en Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður Vesturkjördæmis fyrir VG, hefur hins vegar lýst miklum áhyggjum af frumvarpinu. Ljóst þykir að svæðisskiptingin myndi færa afla sem nú er landað á Vestfjörðum yfir á önnur svæði.

Athygli vakti að í fyrradag tilkynnti síðan Bjarni Jónsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis fyrir VG, að hann styddi hugmyndina um að fækka veiðidögum um fjóra þannig að hverjum báti verði tryggðir 11 veiðidagar það sem eftir er af strandveiðitímabilinu.

Að óbreyttu halda strandveiðar áfram út júní en hætta er á að veiðiheimildir klárast um miðjan júlí, löngu áður en veiðitímabilinu er lokið.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu.

mbl.is