Glænýr vikumatseðill í boði Söndru Erlings

Uppskriftir | 15. janúar 2024

Glænýr vikumatseðill í boði Söndru Erlings

Sandra Erl­ings­dótt­ir landsliðskona og at­vinnumaður í hand­bolta á heiður­inn af vikumat­seðlin­um að þessu sinni. Hún leggur áherslu á að borða hollan og góðan mat og velja næringu sem gefur henni orku út daginn.

Glænýr vikumatseðill í boði Söndru Erlings

Uppskriftir | 15. janúar 2024

Sandra Erlingsdóttir landsliðskona og atvinnumaður í handbolta býður upp á …
Sandra Erlingsdóttir landsliðskona og atvinnumaður í handbolta býður upp á vikumatseðilinn að þessu sinni. Ljósmynd/Sandra Erlings

Sandra Erl­ings­dótt­ir landsliðskona og at­vinnumaður í hand­bolta á heiður­inn af vikumat­seðlin­um að þessu sinni. Hún leggur áherslu á að borða hollan og góðan mat og velja næringu sem gefur henni orku út daginn.

Sandra Erl­ings­dótt­ir landsliðskona og at­vinnumaður í hand­bolta á heiður­inn af vikumat­seðlin­um að þessu sinni. Hún leggur áherslu á að borða hollan og góðan mat og velja næringu sem gefur henni orku út daginn.

Búsett í Þýskalandi með kærastanum sínum

Sandra er bú­sett í Þýskalandi ásamt kærastanum sínum, Daníel Þór Ingasyni en þau eru bæði atvinnumenn í handbolta. Sandra spil­ar með Tussies Metzingen og Daníel spilar með HBW Balingen-Weilstetten. Hún er einnig eig­andi nær­ing­arþjálf­un­ar­inn­ar Ps. Árang­urs sem er nær­ing­arþjálf­un fyr­ir fólk á öll­um aldri.

Leyfi mér allt í hófi

Aðspurð segir Sandra að öll hennar helstu áhuga­mál snú­ist um hreyf­ingu, mataræði og  öllu í raun sem teng­ist heil­brigðum lífs­stíl. „Ég hef talið macros í mörg ár sem hjálp­ar mér að fá inn nóg af nær­ingu úr hverj­um nær­ing­ar­flokk fyr­ir sig sem er mjög mikilvægt að hafa í huga þegar við nærumst. Það hefur hjálpað mér að kom­ast í heil­brigt sam­band við mat og átta mig á því að maður verður að borða nóg og vel til að ná sín­um mark­miðum. Ég tel nú ekki macros alla daga árs­ins en eft­ir að hafa talið í nokk­ur ár tel ég mig vera með ótrú­lega góða stjórn á mínu mataræði og leyfi ég mér orðið allt í hófi,“ seg­ir Sandra.

Er með næringarþjálfunina Ps. Árangur

Sandra er búin að setja saman girnilegan vikumatseðil fyrir lesendur sem er sérstaklega góður fyrir þá sem vilja ná árangri á æfingum samhliða því að hugsa um líkamann og þá orku sem hann þarf. Hægt er að fylgjast með Söndru og því sem hún er að gera í næringaþjálfuninni Ps. Árangur hér.

Mánudagur – Lax að hætti eldhúsgyðjunnar

„Ekkert betra en að byrja nýja viku á góðum fisk.“

Girnilegur laxinn.
Girnilegur laxinn. Ljósmynd/Nigella Lawson

Þriðjudagur – Sterkur núðluréttur að hætti Söndru

„Hér er uppskrift að mínum eigin núðlurétt sem er sterkur og rífur. Hann er í algjöru uppáhaldi hjá mér er fullkominn á þriðjudagskvöldi.“

Núðlurétturinn hennar Söndru er í miklu uppáhaldi hjá henni.
Núðlurétturinn hennar Söndru er í miklu uppáhaldi hjá henni. Ljósmynd/Sandra Erlingsdóttir

Núðluréttur Söndru

Fyrir 5 (5 skammtar)

  • 600 g kjúklingur að eigin vali
  • Krydd fyrir kjúklinginn að eigin vali
  • 1 msk. hvítlauks paste (hvítlauksmajó)
  • 1 msk. sriracha sósa
  • 50 ml létt sojasósa
  • 1 tsk. chilli flögur

Kremuð sósa

  • 30 g létt smjör
  • 12 g saxaður hvítlaukur (2 rif)
  • 1 msk. tómat paste
  • 80 ml létt sojasósa
  • 300 ml Léttmjólk eða mjólk að vild
  • 30 g léttur rjómaostur
  • 20 g rifinn parmesanostur

Núðlur

  • 750 g eldaðar núðlur eða um 250 g óeldaðar

Aðferð:

Byrjið á því að að blanda saman öllum innhaldsefnunum fyrir kjúklinginn í skál, bætið síðan við kjúklingnum í og veltið honum upp úr sósunni þangað til hann er allur í sósunni.

Steikið hann á pönnu með sprey-olíu þar til hann er orðinn gullinn brúnn, einnig hægt að elda í ofni eða í airfryer.

Bætið við á miðlungsheita pönnu innihaldsefnunum úr sósunni þar til allt er orðið vel blandað.

Bætið síðan við um það bil 750 g af elduðum núðlum og hrærið saman.

Í lokinn bætið við eldaða kjúklingnum, blandið saman og látið malla í um það bil 5 mínútur eða þar til rétturinn er orðinn kremaður.

Skiptið síðan réttinum niður í 5 parta (eða færri) og geymið í ísskáp í allt að 3 daga eða í frysti í allt að 3 mánuði. Þá getið þið fengið ykkur einn skammt í senn ef vill.

Sjá réttinn hér líka:

View this post on Instagram

A post shared by Ps. Árangur (@ps.arangur)

Miðvikudagur – Píta með heimagerðri pítusósu

„Okkur finnst mjög gott að fá okkur einn vegan rétt á viku og miðvikudagar eru góðir dagar fyrir vegan.“

Ómótstæðilegar pítur með heimagerðri pítusósu.
Ómótstæðilegar pítur með heimagerðri pítusósu. Ljósmynd/Tinna Þorradóttir

Fimmtudagur – Kjúklingaréttur með sriracha sósu

„Leikum okkur með mismunandi rétti enn þessi er einfaldur og hrikalega góður.“

Æðislegur kjúk­linga­rétt­ur með sriracha- majó.
Æðislegur kjúk­linga­rétt­ur með sriracha- majó. Ljósmynd/Tinna Þorradóttir

Föstudagur – Djúsí próteinpítsa

Hér er það svo vinsæla skyrpitsan frá Helgu Möggu macros vinkonu okkar Ps. Árangurs.“

 

Djúsí próteinpítsur sem steinliggja.
Djúsí próteinpítsur sem steinliggja. Ljósmynd/Helga Magga

Laugardagur – Kjúklingavefjur

„Leikdagur og þá er það einföld kjúklingavefja.“

Fjölskylduvænar kjúklingavefjur.
Fjölskylduvænar kjúklingavefjur. Ljósmynd/Berglind Guðmunds


Sunnudagur
 – Ljúffengur kjúklingaborgari

„Við elskum góðan hamborgara, sérstaklega kjúklingaborgara og þessi hér í algjöru uppáhaldi.“

Ómótstæðilegir kjúklingaborgara sem enginn verður svikinn af.
Ómótstæðilegir kjúklingaborgara sem enginn verður svikinn af. Ljósmynd/Hildur Rut Ingimars
mbl.is