Bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur

Kjaramál sjómanna | 7. febrúar 2024

„Ég er mjög bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur að þessu sinni. Ég held að við höfum náð flestu því inn sem menn kvörtuðu yfir í síðasta samningi,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, í Morgunblaðinu í dag um nýjan kjarasamning sjómanna við Samtök Fyrirtækja í sjávarútvegi.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Ljósmynd/Sjómannasamband Íslands.

„Ég er mjög bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur að þessu sinni. Ég held að við höfum náð flestu því inn sem menn kvörtuðu yfir í síðasta samningi,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, í Morgunblaðinu í dag um nýjan kjarasamning sjómanna við Samtök Fyrirtækja í sjávarútvegi.

„Ég er mjög bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur að þessu sinni. Ég held að við höfum náð flestu því inn sem menn kvörtuðu yfir í síðasta samningi,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, í Morgunblaðinu í dag um nýjan kjarasamning sjómanna við Samtök Fyrirtækja í sjávarútvegi.

Samningurinn verður kynntur fyrir sjómönnum og síðan verða greidd atkvæði um hann. Hefst atkvæðagreiðslan kl. 12 mánudaginn 12. febrúar og henni lýkur kl. 15. föstudaginn 16. febrúar. Stjórn SFS mun og taka afstöðu til samningsins.

Fulltrúar sjómanna og útvegsmanna skrifuðu undir samninginn.
Fulltrúar sjómanna og útvegsmanna skrifuðu undir samninginn. Ljósmynd/Sjómannasamband Íslands

Samningurinn felur í sér talsverða hækkun kauptryggingar, aukin lífeyrisréttindi og desemberuppbót frá árinu 2028.

„Það er alltaf ánægjulegt að klára verkefni sem okkur hafa verið falin. Þessi ábyrgð fór ekkert frá okkur þótt sjómenn hafi fellt samning fyrir ári, verkefnið síðan þá hefur falist í að átta okkur á því hvað það var sem olli óánægju sjómanna og þá að reyna að koma til móts við þær óánægjuraddir og það er sú niðurstaða sem við sjáum í dag,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

mbl.is