SVG og VM samþykktu samninginn

Kjaraviðræður | 5. mars 2024

SVG og VM samþykktu samninginn

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) og Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM) hafa samþykkt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

SVG og VM samþykktu samninginn

Kjaraviðræður | 5. mars 2024

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, fagnar því að búið sé …
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, fagnar því að búið sé að semja við rúmlega 90% sjómanna á skipum fyrirtækja innan SFS. mbl.is/Árni Sæberg

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) og Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM) hafa samþykkt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) og Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM) hafa samþykkt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SFS.

Felldu samning í fyrra

VM samþykkti samninginn með 67,6% atkvæða en 31,3% greiddu atkvæði gegn samningnum. Kosningaþátttaka var um 64%.

SVG samþykkti samninginn með 56,4% atkvæða en 38,3% voru á móti. Kosningaþátttaka var 43.6%.

Í tilkynningu segir að breytingar hafi verið gerðar á samningnum frá því í febrúar í fyrra, en þá var hann felldur. 

Þá segir að tímakaup hafi verið hækkað, gefið hefur verið aukið svigrúm til uppsagnar samningsins, skerpt hefur verið á réttarstöðu í tengslum við slysa- og veikindarétta þeirra sem ráðnir eru með tímabundinni ráðningu meðal annars. 

„Við fögnum því að hafa nú gilda samninga við rúmlega 90% sjómanna á skipum fyrirtækja innan SFS. Það eykur fyrirsjáanleika sem tryggir hagsmuni okkar allra sem vinnum í þessari grein, ekki síst sjómannanna sjálfra,“ er haft eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóri SFS í tilkynningu.

mbl.is