VR samþykkir kjarasamninga

Kjaraviðræður | 21. mars 2024

VR samþykkir kjarasamninga

Félagsmenn í VR hafa samþykkt kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins með miklum meirihluta atkvæða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu. 

VR samþykkir kjarasamninga

Kjaraviðræður | 21. mars 2024

Félagsfólk samþykkti kjarasamninga.
Félagsfólk samþykkti kjarasamninga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Félagsmenn í VR hafa samþykkt kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins með miklum meirihluta atkvæða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu. 

Félagsmenn í VR hafa samþykkt kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins með miklum meirihluta atkvæða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu. 

Fram kemur að samningurinn var samþykktur með 78,56% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 5485 VR félagar og nei sögðu 1325 eða 18,98%.

Þau sem tóku ekki afstöðu voru 172 eða 2,46%. Á kjörskrá um samning VR og SA voru 39.639 VR félagar og greiddu 6982 atkvæði, og var kjörsókn því 17,61%.

Eins var kjarasamningur VR við FA samþykktur með 80,12% atkvæða, en já sögðu 262 VR félagar og nei 60, eða 18,35%.

Þau sem tóku ekki afstöðu voru 5 eða 1,53%. Á kjörskrá um samning VR og FA voru 1242 VR félagar og greiddu atkvæði 327, og var kjörsókn því 26,33%.

Atkvæðagreiðsla um samningana var rafræn á vr.is og stóð yfir dagana 18.- 21. mars 2024.

mbl.is