Kjarasamningur samþykktur með miklum meirihluta

Kjaraviðræður | 20. mars 2024

Kjarasamningur samþykktur með miklum meirihluta

Atkvæðagreiðslu meðal félagsfólks Eflingar um nýjan kjarasamning við SA er lokið. Samningurinn var samþykktur með yfir þremur fjórðu hlutum greiddra atkvæða, og kjörsókn stórjókst miðað við atkvæðagreiðsluna 2019, að því er Efling greinir frá í tilkynningu. 

Kjarasamningur samþykktur með miklum meirihluta

Kjaraviðræður | 20. mars 2024

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, óskar félagsfólki til hamingju með …
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, óskar félagsfólki til hamingju með nýjan kjarasamning. mbl.is/Kristinn Magnússon

Atkvæðagreiðslu meðal félagsfólks Eflingar um nýjan kjarasamning við SA er lokið. Samningurinn var samþykktur með yfir þremur fjórðu hlutum greiddra atkvæða, og kjörsókn stórjókst miðað við atkvæðagreiðsluna 2019, að því er Efling greinir frá í tilkynningu. 

Atkvæðagreiðslu meðal félagsfólks Eflingar um nýjan kjarasamning við SA er lokið. Samningurinn var samþykktur með yfir þremur fjórðu hlutum greiddra atkvæða, og kjörsókn stórjókst miðað við atkvæðagreiðsluna 2019, að því er Efling greinir frá í tilkynningu. 

Atkvæði féllu þannig: 

  • sögðu 2.782 eða 76% þeirra sem greiddu atkvæði.
  • Nei sögðu 493 eða 13% þeirra sem greiddu atkvæði.
  • 377 eða 10% skiluðu auðu.

Af þeim 20.326 Eflingarfélögum sem voru á kjörskrá nýttu 3.652 atkvæðisrétt sinn eða rétt tæp 18%. Til samanburðar var kjörsókn rúm 10% í sambærilegri atkvæðagreiðslu um Lífskjarasamningana árið 2019, að því er segir í tilkynningu frá Eflingu. 

„Ég óska félagsfólki til hamingju með nýjan kjarasamning og ég óska líka samninganefnd Eflingar til hamingju með að hann hafi verið samþykktur með svo góðum meirihluta. Í því felst mikil og dýrmæt traustsyfirlýsing til félagsfólksins sem sigldi þessum kjaraviðræðum í höfn. Ég fagna því líka að við höfum aukið kjörsókn um hátt í 80% miðað við atkvæðagreiðsluna 2019, sem að mínum dómi er til marks um árangur okkar í að efla þátttöku í félaginu á síðustu árum,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar.

Þá hvetur Efling félagsfólk til að kynna sér vel allar breytingar samningsins, sérstaklega launahækkanir.

„Félagsfólk er er jafnframt hvatt til að fylgjast með því að launahækkanir skili sér við næstu launagreiðslu. Hækkanir gilda frá 1. febrúar og á því næsta launagreiðsla að fela í sér afturvirkni vegna febrúarmánaðar.“

mbl.is